Sölusíðan Aha.is hefur undanfarna vikuk staðið fyrir nýyrðasamkeppni. Leitað er að íslenskri þýðingu á ensku orðunum „take away". Þátttakan fór fram úr björtustu vonum en alls bárust 1.923 tillögur og af þeim voru tæplega 1.100 mismunandi orð.

Í tilkynningu frá Aha.is segir að upphaflega hafi staðið til að tilkynna sigurvegarann í dag en vegna fjölda þeirra tillagna sem hafi borist hafi verið horfið frá því. Nú mun sérstök dómnefnd velja bestu orðin úr og á morgun verður efnt til netkosningar á vefsíðu Aha.is. Kosningin stendur fram á fimmtudag.