Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi í dag að íbúakosning um miðbæjarskipulag á Selfossi muni fara fram laugardaginn 18. ágúst 2018. Stefnt er að því að kosningin verði með hefðbundnum hætti í kjördeildum og kjörstaðir verði opnir frá kl. 9:00 – 18:00. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Árborgar .

Eftirfarandi spurningar sem voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar 14. maí sl. verða lagðar fyrir í íbúakosningunni:

Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) tillögu að breytingu sem bæjarstjórn Árborgar samþykkti hinn 21. febrúar 2018 á aðalskipulagi Selfoss vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar í miðbæ Selfoss?

Hlynnt(ur)

Andvíg(ur)

Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) tillögu að breytingu sem bæjarstjórn Árborgar samþykkti hinn 21. febrúar 2018 á deiliskipulagi fyrir miðbæ Selfoss?

Hlynnt(ur)

Andvíg(ur)

Bæjarráð áréttar í fundargerðinni að niðurstöður kosninganna verði eins og áður var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 18. júní sl.

Niðurstaða atkvæðagreiðslu úr íbúakosningunni um breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir miðbæinn á Selfossi verði bindandi fyrir ákvörðun bæjarstjórnar um framhald málsins. Þessi binding bæjarstjórnar nær eingöngu til málsins ef að lágmarki 29% kjörgengra íbúa tekur þátt í kosningunni. Ef hins vegar færri en 29% íbúa taka þátt í kosningunni verður niðurstaðan ráðgefandi fyrir endanlega ákvörðun bæjarstjórnar.