Stjórnarkosning er hafin í stéttarfélaginu Eflingu en þær fara fram í dag og á morgun á þremur kjörstöðum.

Kosið er á milli tveggja lista, annars vegar A-lista stjórnar og trúnaðarráðs en Ingvar Vigur Halldórsson, fer fyrir því framboði. A-listinn nýtur stuðnings núverandi stjórnar og fráfarandi stjórnarformanns Sigurðar Bessasonar. Hins vegar er í framboði B-listi Sólveigar Önnu Jónsdóttur en hann nýtur stuðnings Sósíalistaflokksins og Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR.

Kosið er á Skrifstofu Eflingar, Guðrúnartúni 1, milli 9 og 20 báða dagana, á skrifstofu Eflingar í Hveragerði, Austurmörk 2, milli 10 og 18 báða dagana og í Kiwanishúsinu Þorlákshöfn við Óseyrarbraut í dag milli 10 og 18.