Kostnaður neytenda af tollum sem lagðir eru á innflutning svína- og alifuglakjöts nemur um fjórum milljörðum króna. Þetta kemur fram í útreikningum efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins.

Hvert heimili myndi spara sér 32.938 krónur að meðaltali á ári ef tollarnir yrðu lagðir niður samkvæmt útreikningunum. Ef þeir yrðu lækkaðir um helming yrði sparnaður á hvert heimili eitthvað um það bil 21.249 krónur.

Talsverð aukning hefur verið í sölu svínakjöts hérlendis, eða um 12% á síðasta ári.