Áætlaður kostnaður vegna fjársvika í heiminum er rúmlega 3.500 milljarðar dollara á ári og er hann talin vera að meðaltali 5% af heildartekjum fyrirtækja og stofnana. Sérfræðingur hjá Nýherja segir það taka 3,5 ár að uppgötva fjársvik og misferli komist upp í flestum tilvikum í gegnum ábendingar frá aðilum sem hafi grunsemdir um óeðlilega viðskiptahætti.

Nýherji stendur fyrir morgunverðarfundi næsta þriðjudag þar sem sérfræðingar í heimi fjársvika og tölvuglæpa veita innsýn í lausnir gegn slíku, en fundurinn er haldinn í samvinnu við IBM og FraudID í Danmörku.

Guðjón Ágústsson sérfræðingur í hugbúnaðarlausnum hjá Nýherja segir í bloggi sínu á vef Nýherja að samkvæmt greiningafyrirtækjum hafi fjársvik og misferli ýmiskonar færst í aukana og séu vaxandi vandamál í daglegum rekstri fyrirtækja og stofnana.

„Fjársvik eru það margvísleg, margbrotin og háþróuð að þau eru erfið viðureignar fyrir þá sem reyna að takmarka eða koma í veg fyrir tjón vegna þeirra. Heildstæðar fjársvikalausnir geta þar af leiðandi hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að komast fljótar að svikum, komið í veg fyrir fjárhagslegt tjón og þannig takmarkað hnekki á orðspori. Með greiningu á gögnum úr mismunandi tækjum og kerfum er hægt að finna grunsamleg atvik sem eiga sér stað í ýmsum þáttum viðskipta og þjónustu,“ segir Guðjón.