Byrði húsnæðiskostnaðar meðaleinstaklings nam um 16,8% af ráðstöfunartrekjum í fyrra. Byrðin hafði haldist nokkuð stöðug frá árinu 2006. Hagstofan birtir upplýsingarnar í dag og segir að undirliggjandi voru þó allnokkrar breytingar á húsnæðisbyrði fólks með mismunandi stöðu á fasteignamarkaði, þ.e. byrðin hækkaði hjá leigjendum en lækkaði hjá fólki sem bjó í eigin húsnæði. Hlutfall fólk með íþyngjandi húsnæðiskostnar er í meðallagi hér samanborið við önnur Evrópulönd. Árið 2012 var byrðin áberandi hæst í Grikklandi (31,0%) en næst á eftir komu Holland með 26,7% og Danmörk með 25,5%.

Árið 2013 greiddu 8,8% manns húsnæðiskostnað sem var 40% eða meira af ráðstöfunartekjum, en það skilgreinist sem verulega íþyngjandi húsnæðiskostnaður. Árið 2006 var þetta hlutfall hæst 14,3% en hefur lækkað síðan þá. Þróunin var þó ólík eftir hópum. Hlutfallið hækkaði á meðal leigjenda en lækkaði á meðal eigenda, hækkaði á meðal heimila með einn fullorðinn einstakling og börn en lækkaði hjá heimilum tveggja fullorðinna með tvö börn, hækkaði meðal fólks yngra en 30 ára en lækkaði á öðrum aldursbilum. Þá var íþyngjandi húsnæðiskostnaður mun tíðari hjá fólki í lægsta tekjufimmtungi en hjá tekjuhærri hópum.