Kostnaður slitastjórnar Glitnis við málsókn í New York gegn fyrrum hluthöfum og stjórnendum bankans nemur nú um 375 milljónum króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá slitastjórninni. Segir að ákvörðun um málsókn hafi verið tekin á grundvelli ráðgjafar virtrar bandarískrar lögfræðistofu.

Fréttatilkynning slitastjórnar Glitnis:

„Slitastjórn Glitnis banka vill að gefnu tilefni upplýsa að kostnaður við málssókn gegn fyrrum hluthöfum og stjórnendum Glitnis fyrir dómstóli í New York nemur nú 375 milljónum króna. Sá kostnaður er ekki hár samanborið við þá hagsmuni sem slitastjórn er að berjast fyrir að ná til baka til kröfuhafa. Ákvörðun um málsókn var tekinn á grundvelli ráðgjafar virtrar bandarískrar lögmannsstofu enda snérist málareksturinn að grunni til um útboð sem fór fram í Bandaríkjunum og á grundvelli þarlendra laga. Þess utan háttar svo til að margir hinna stefndu eru með lögheimili utan Íslands. Þá er vakin á því athygli að málinu var vísað frá með skilyrðum um viðurkenningu hinna stefndu á lögsögu íslenskra dómstóla og aðfararhæfi og þess utan var hverjum aðila málsins gert að bera sjálfur sinn kostnað. Slitastjórnin vill einnig upplýsa að u.þ.b. 90% kröfuhafa Glitnis eru erlendir og eignir að lang mestu leyti staðsettar utan Íslands. Heildarendurheimtur sem Glitnir hefur þegar fengið greiddar vegna  rannsókna frá upphafi til dagins í dag nema 3.150 milljónum króna. Heildarkostnaður þessa málaflokks  þ.m.t. ofangreindur kostnaður svo og annar lögfræðikostnaður, endurskoðendakostnaður og kostnaður vegna rannsóknarfyrirtækisins Kroll nemur nú alls 1.271 milljón króna.“