Vísitala neysluverðs í nóvember 2007 er 279,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,65% frá fyrra mánuði samkvæmt því sem segir á vef Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 249,7 stig, hækkaði um 0,40% frá október.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,9%, vísitöluáhrif 0,36%, en þar af voru 0,29% áhrif vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis og 0,07% vegna hækkunar vaxta.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 2,1% (0,1%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,9%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,0% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,5% sem jafngildir 10,3% verðbólgu á ári (7,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis). Vísitala neysluverðs í nóvember 2007, sem er 279,9 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.527 stig fyrir desember 2007.

Í janúar breytist vísitala neysluverðs þannig að söfnun verðupplýsinga fyrir vísitöluna færist frá tveimur dögum í upphafi mánaðar til a.m.k vikutíma um miðjan mánuð. Samtímis breytist viðmiðunartími vísitölu neysluverðs til verðtryggingar.