Vísitala neysluverðs í október 2007 er 278,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,51% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 248,7 stig, hækkaði um 0,36% frá september.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 0,8%, vísitöluáhrif 0,16%, en þar af voru 0,1% áhrif vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis og 0,06% vegna hækkunar vaxta.

Sumarútsölum er nú víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,5% (0,15%). Þá hækkaði verð matar og drykkjarvöru um 1,0% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,3%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 6,3% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% sem jafngildir 7,7% verðbólgu á ári (4,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í október 2007, sem er 278,1 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.491 stig fyrir nóvember 2007.