Endurskoðunafyrirtækið KPMG opnar um þessar mundir skrifstofu í Stykkishólmi. Í tilefni af því býður KPMG til fróðleiksfundar um ferðaþjónustutengd skattamál í Stykkishólmi. Fundurinn verður haldinn á Hótel Stykkishólmi og hefst kl. 17:00.
Meðal þess sem fjallað verður um eru ýmis flækjustig virðisaukaskatts í ferðaþjónustustu, helstu skattalagabreytingar, nýjar breytingar á reglum um reiknað endurgjald og reglum um frádrátt á móti dagpeningum og ökutækjastyrkjum.
Það er hægt að sjá meira um fundinn á vef KPMG.