Axel Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá KFD A/S í Danmörku sem er systurfélag Kraftvéla. Tók hann við starfinu í síðustu viku af Þorfinni Þórðarsyni. Axel er með meistaragráðu í verkfræði ásamt MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarna tvo mánuði hefur Axel sinnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra KFD A/S ásamt því að sjá um öll þjónustumál fyrirtækisins. Axel gegndi stöðu framkvæmdastjóra þjónustusviðs Kraftvéla til fimm ára, áður en hann hóf störf hjá KFD A/S.