Þann 6. júlí næstkomandi mun fyrirtækið Kreditkort sem hefur aðsetur í Ármúlanum loka og færa starfsemi sína alfarið yfir á netið.

Fyrirtækið sem er í eigu Íslandsbanka mun framvegis styðjast við rafrænar lausnir við alla afgreiðslu tengda kortaumsýslu til að byggja upp og bæta þjónustuna. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Starfsmenn Kreditkorts munu flytja yfir í höfuðstöðvar Íslandsbanka.

„Í Kreditkortsappinu má alltaf sjá rauntímastöðu, breyta heimild, nálgast PIN númer og fleira. Það sama gildir um vef okkar, kreditkort.is , þar sem öll þjónusta fer fram gegnum Mínar síður. Við bendum á að reikninga má greiða í öllum bankaútibúum á  Íslandi og að sjálfsögðu verður síminn okkar áfram opinn frá 8:30–17 alla virka daga, auk þess sem neyðarnúmer er alltaf virkt. Viðskiptavinir eru hvattir til að heyra í okkur ef þeir hafa einhverjar spurningar í tengslum við þessar breytingar," segir í tilkynningu frá félaginu.