Heildarvelta kreditkorta í septembermánuði var 26 milljarðar króna samanborið við 27,5 milljarða á sama tíma í fyrra og er þetta 5,6% samdráttur milli ára.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en heildarvelta kreditkorta jókst um 9,5% í september miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í september 31,4 milljarðar króna og dróst saman um 9,4% frá fyrri mánuði. Sé heildardebetkortaveltan borin saman við sama tíma í fyrra þá hefur heildardebetkortaveltan dregist saman um 2,3 milljarða á milli ára eða um 6,7%.