Heildarvelta kreditkorta í marsmánuði var 20,7 milljarðar króna, samanborið við 24,7 milljarða á sama tíma í fyrra og er þetta 16,3% samdráttur milli ára.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en heildarvelta kreditkorta dróst saman um 7% í mars miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í mars 28,4 milljarðar króna sem var 1,7% aukning frá fyrri mánuði. Samanborið við sama tíma í fyrra dróst heildardebetkortaveltan í mars saman um 2,6 milljarða króna milli ára eða um 8,5%.