© Getty Images (Getty)

Í júlí jókst heildarvelta íslenskra Visa kreditkorta um 5,7% frá sama mánuði í fyrra. Notkun innanlands jókst um 4,1% en erlendis var veltuaukningin um 15,3%, að því er fram kemur í tilkynningu frá Valitor.

Til samanburðar jókst veltan í júní um 5% frá sama mánuði í fyrra.

Mest jókst kreditkortaveltan í áfengisverslunum, eða um 4,3% frá júlí í fyrra. Veltan á bensínstöðvum dróst hins vegar saman um 2,8% milli ára. Kreditkortaveltan í matvöru- og stórverslunum jókst um 0,5%.