Íslenskt dótturfyrirtæki WikiLeaks, Sunshine Press Productions, hefur krafið Valitor um fimm milljarða króna í bætur og vexti vegna tjóns sem varð þegar Valitor lokaði fyrir greiðslugátt fyrirtækisins. Frá þessu er greint á vef ruv.is.

Visa greiðslukortafyrirtækið lokaði á greiðslugátt WikiLeaks árið 2010 þannig að framlög til samtakanna bárust ekki með þeirri leið og Valitor fyrirtæki Visa á Íslandi gerði slíkt hið sama árið 2011. Hæstiréttur komst í kjölfarið að þeirri niðurstöðu að þetta hafi verið óheimilt og stefndu Sunshine Press Productions og Data Cell, sem ætlaði að annast greiðslugáttina, Valitor til greiðslu bóta. Tveir dómskvaddir matsmenn voru skipaðir til að leggja mat á tjónið og hafa þeir nú skilað niðustöðu sinni.

Matsmennirnir, þeir Russel Lamb og Jón Scheving Thorsteinsson, meta tjónið 3,2 milljarð króna en að viðbættum dráttarvöxtum nemur upphæðin um 5 milljörðum króna.

Í viðtali við ruv.is segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Sunshine Press Productions, að Valitor hafi verið veittur frestur til að skila greinargerð í málinu fyrir héraðsdómi.