Samninganefnd Eflingar stéttarfélags hefur samþykkt að gera Samtökum atvinnulífsins tilboð um fimmtán mánaða kjarasamning. Tilboðið er um 56.700 króna flata krónutöluhækkun á öll laun og 15.000 króna mánaðarlega framfærsluuppbót til viðbótar. Þessar hækkanir komi til framkvæmda frá 1. nóvember 2022. Samningur gildi til 31. janúar 2024.

Tilboð Eflingar hljómar því samtals upp á 71,7 þúsund króna launahækkun á mánuði eða sem samsvarar 19,5% hækkun miðað við lægsta gildandi taxta.

„Með þessu kemur Efling til móts við kröfur um skammtíma kjarasamning sem komið hafa frá öðrum verkalýðsfélögum, ríkisstjórninni og SA. Hækkanir í tilboðinu eru áþekkar því sem gera hefði mátt ráð fyrir á fyrsta ári í þriggja ára samningi, sem krafist var í upphaflegri kröfugerð.“

Í kröfugerð Eflingar, sem var birt í lok október, var farið fram á að mánaðarlaun hækki um 167 þúsund krónur á næstu þremur árum.

Í tilkynningunni sem samninganefnd Eflingar sendi frá sér í morgun segir hún að umsamdar hækkanir þurfi að verja heimili láglauna- og meðaltekjufólks fyrir áhrifum verðbólgunnar og tryggja þeim „eðlilega hlutdeild í hagvexti og fádæma góðri afkomu fyrirtækjanna“.

Þá telur nefndin önnur stéttarfélög hafa gert mistök með því að fallast á aðferðafræði prósentuhækkana í viðræðum við SA.

„Allir eru sammála um að ofþensla og ofneysla í hærri helmingi launastigans eru eitt helsta vandamálið í íslensku efnahagslífi. Seðlabankinn hefur gripið til hóprefsinga gegn allri þjóðinni í formi stýrivaxtahækkana með vísan til þessarar stöðu. Í þessu samhengi er það augljós fjarstæða að ræða um að hálaunafólk eigi að fá tvöfaldar hækkanir á við láglaunafólk,” segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

„Það er hins vegar mögulegt að laga sig að kröfum um skammtímasamning. Tilboð okkar er skammtíma útfærsla á skynsamri og vel rökstuddri kröfugerð samninganefndar Eflingar.“