Fjarskiptum hf. (Vodafone) hefur borist stefna þar sem gerð er krafa um bætur vegna tjóns sem einstaklingur telur sig hafa orðið fyrir vegna innbrotsþjófnaðar erlends tölvuhakkara á heimasíðu Vodafone í nóvember 2013 og í kjölfarið dreifingu þjófsins og annarra á hinum stolnu gögnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Gerð er krafa um skaða- og miskabætur að fjárhæð kr. 90.000.000 auk vaxta og málskostnaðar. Er þetta önnur stefnan vegna innbrotsins.

„Sem fyrr telur félagið verulegan vafa leika á bótaskyldu og að dæmdar fjárhæðir, telji dómstólar bótaskyldu yfir höfuð til staðar, hafi í öllu falli óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Fyrir liggur að stefnufjárhæð er í engu samræmi við dómafordæmi í skaða- og miskabótamálum hér á landi. Gerð verður grein fyrir þessari og mögulegum frekari málshöfðunum í skýringum ársfjórðungsuppgjöra eða eftir því sem við getur átt,“ segir í tilkynningunni.