Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt Sparisjóðabanka Íslands (áður Icebank) að verðmæti óvarinna verðbréfa sem Sparisjóðabankinn hefur í veðlánunum hjá Seðlabankanum og útgefin voru af Glitni, Kaupþingi og Landsbanka, hafi verið endurmetin.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kaupahallarinnar.

Jafnframt krafði Seðlabankinn Sparisjóðabanka Íslands um auknar tryggingar vegna þeirra veðlána. Krafa um auknar tryggingar nemur um 60 milljörðum króna.

Þá kemur fram að Sparisjóðabanki Íslands leitar nú samninga við Seðlabankann og /eða ríkissjóð vegna þessa endurmats Seðlabanka Íslands.