Kristín Erla Jóhannsdóttir er nýr forstöðumaður Eignastýringar hjá Landsbankanum.

Kristín hefur starfað hjá bankanum frá 2014 en áður hafði hún unnið hjá Kaupþingi og Arion banka frá 2001 til 2014.

Þar starfaði hún á fjármálasviði, í fjárstýringu, eigin viðskiptum og í markaðsviðskiptum.

Kristín Erla er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.