Hannes Frímann Hrólfsson,  fyrrverandi aðstoðarframkvæmdarstjóri markaðsviðskipta Kaupþings, hefur verið ráðinn forstjóri Auðar Capital. Hann tekur við af Kristínu Pétursdóttur, sem stofnaði Auði Capital. Kristín vann sömuleiðis hjá Kaupþingi en hún hætti hjá bankanum í árslok 2006. Kristín tekur í kjölfarið við sem stjórnarformaður félagsins.

Haft er eftir Kristínu í tilkynningu frá Auði Capital að hún telji þetta réttan tímapunkt til að taka við nýju hlutverki eftir sex ára starf.