Kristín Guðmundsdóttir, forstjóri Skipta, tilkynnti stjórn Skipta í dag að hún segði starfi sínu lausu frá og með deginum í dag. Kristín tók við starfi forstjóra Skipta í janúar síðastliðnum en áður var hún staðgengill forstjóra og fjármálastjóri félagsins frá 2003. Að ósk stjórnar mun Kristín starfa áfram sem forstjóri þangað til annað hefur verið ákveðið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Kristín tók við starfi forstjóra þann 7. janúar sl. Í tilkynningu segir Kristín:

„Ég hef starfað hjá Símanum og Skiptum í átta ár. Á þeim tíma hefur fyrirtækið tekið miklum breytingum og mjög viðburðaríkur tími er að baki. Nú hafa Skipti skrifað undir samninga við lánveitendur og birt ársreikning fyrir árið 2010. Ég hef nú ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum og vil þakka samstarfsfólki mínu fyrir frábært samstarf og óska þeim og fyrirtækinu alls hins besta.“

Skúli Valberg Ólafsson, stjórnarformaður Skipta, segir „Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka Kristínu fyrir frábært starf í þágu félagsins á undanförnum árum. Hún hefur leikið lykilhlutverk við að stýra félaginu í þeim ólgusjó sem hefur einkennt rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja undanfarin misseri. Ég óska henni alls hins besta í þeim verkefnum sem hún tekur sér nú fyrir hendur.“