„Afar mikilvægt er fyrir 14.000 nemendur Háskóla Íslands að ekki komi til verkfalls. Slíkt hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í yfirlýsingu til fjölmiðla. Yfirlýsingin er send í framhaldi af ákvörðun Félags háskólakennara um að fresta boðuðu verkfalli dagana 25. apríl til 10. maí 2014.

Kristín segir að á undanförnum árum hafi félagsmenn Félags háskólakennara tekið á sig launaskerðingu, aukna kennsluskyldu og aukið álag vegna mikillar fjölgunar nemenda. Kristín segir að Háskóli Íslands muni koma til móts við óskir Félags háskólakennara eftir fremsta megni.

„Samhliða því treystir Háskóli Íslands á stuðning stjórnvalda, sbr. yfirlýsingu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar um Aldarafmælissjóð. Hún felur í sér að staðið verði við samning varðandi stefnumótun um fjármögnun Háskóla Íslands þannig að tekjur hans verði sambærilegar meðaltali framlaga OECD-þjóða til háskóla og síðar meir meðaltali framlaga háskóla á Norðurlöndum,“ segir Kristín í yfirlýsingunni.