Kristín Þóra Harðardóttir hefur verið ráðin í starf lögfræðings á vinnumarkaðssviði hjá Samtökum atvinnulífsins.
Kristín Þóra hefur undanfarin fimm ár starfað sem vinnuréttarlögfræðingur á mannauðsskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Hún er menntaður garðyrkjufræðingur og með BA í heimspeki. Kristín Þóra tekur við af Guðjóni Axel Guðjónssyni, sem starfar nú hjá Landsneti.