© Aðsend mynd (AÐSEND)

Kristín Vala Matthíasdóttir var kjörin nýr formaður Jarðhitafélags Íslands á aðalfundi félagsins. Hún tekur við formennskunni af Bjarna Pálssyni, deildarstjóra virkjanadeildar Landsvirkjunar.

Fram kemur í tilkynningu að Kristín Vala er með meistaragráðu í efnaverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð. Hún hefur starfað sem efnaverkfræðingur HS Orku undanfarin þrjú ár. Áður starfaði Kristín Vala hjá Magma á Íslandi, Geysi Green Energy,  Enex og VSÓ Ráðgjöf.  Kristín Vala hefur setið í stjórn Jarðhitafélagsins sem varaformaður stjórnar síðan 2012.

Þá voru kjörnir nýir í stjórn félagsins þeir Egill Júlíusson frá Landsvirkjun og Sigurjón N. Kjærnested frá Samorku, en úr stjórn gengu þeir Bjarni Pálsson og Gústaf Adolf Skúlason. Áfram sitja jafnframt í stjórn þau Claus Ballzus frá Mannviti, Hildigunnur H. Thorsteinsson frá Orkuveitu Reykjavíkur, Magnús Þór Jónsson frá Háskóla Íslands og Magnús Ólafsson frá ÍSOR.