Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands og prófessor við Lyfjafræðideild, hefur þegið boð um að verða gestaprófessor við Massachusetts Institute of Technology (MIT) eftir að hún lýkur störfum sem rektor HÍ síðar á þessu ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Kristín mun starfa í tengslum við tvær stofnanir innan MIT. Annars vegar er um að ræða Stofnun í stafrænni kennslu (digital learning) og edX, sem er samstarfsnet MIT og yfir 40 annarra háskóla og stofnana víðs vegar um heim. EdX býður ókeypis opin námskeið á háskólastigi á netinu, svokölluð massive open online courses (MOOCs).

Kristín mun einnig tengjast MIT Media Lab sem er nýsköpunarsetur skólans. Þar fara fram rannsóknir og útfærsla nýstárlegra hugmynda þvert á hefðbundna skilgreiningu og skipulag fræðigreina. Verkefnin snúa meðal annars að tæknilausnum við meðhöndlun sjúkdóma og leiðum til að bæta líf sjónskertra, fatlaðra og fólks sem misst hefur útlimi.

„Ég er mjög spennt að fá tækifæri til að tengja mína fræðigrein, lyfjafræði, við þróun í upplýsingatækni og lífverkfræði til að bæta greiningu og meðhöndlun sjúkdóma og tengsl við sjúklinga. Ég vonast til að þessi vinna geti nýst sem efniviður inn í þverfræðilegt starf við Háskóla Íslands, en við höfum lagt áherslu á að auka það markvisst undanfarin ár,“ segir Kristín.

Kristín verður áfram stjórnarmaður í háskólaráði Háskólans í Lúxemborg eftir að hún lætur af störfum sem rektor Háskóla Íslands 30. júní nk. og þá mun hún einnig starfa áfram að verkefnum fyrir Samtök evrópskra háskóla (EUA).