Framboð í stjórn Straums Fjárfestingarbanka hf. fyrir aðalfundi félagsins þann 4. feb. 2005 liggur nú fyrir. Þar liggur fyrir að Kristinn Björnsson býður sig á ný fram í stjórn Straums en hann sagði sig úr stjórninni í haust.
Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn bankans á aðalfundi 4. febrúar nk.
Aðalmenn:
Ingimundur Sigurpálsson
Kristinn Björnsson
Magnús Kristinsson
Þorsteinn Már Baldvinsson
Þór Kristjánsson
Varamenn:
Finnur Geirsson
Guðjón Auðunsson
Gunnar Sch. Thorsteinsson
Gunnar Jóhann Birgisson
Steingrímur Pétursson
Samkvæmt samþykktum félags skal kjósa fimm aðalmenn til setu í stjórn bankans og fimm menn til vara. Samkvæmt þessu er ljóst að sjálfkjörið verður í stjórn Straums Fjárfestingarbanka hf. á aðalfundi hans þann 4. febrúar nk