Kristinn Geirsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Nýherja hf. Í tilkynningu frá Nýherja segir að Kristinn muni einkum beita kröftum sínum að stýringu á fjármálum félagsins og vinna með framkvæmdastjórum dótturfélaga að rekstrarmálum þeirra og fjárstýringu. Hann muni einnig vinna með forstjóra að fjárhagslegri endurskipulagningu Nýherja og viðskiptaáætlunum um starfsemi félagsins.

Kristinn er 43 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og rekstrarhagfræðingur - MBA - frá Warthon School, University of Pennsylvania. Hann hefur áður m.a. gegnt störfum framkvæmdastjóra eða forstjóra hjá Glitni banka hf., Sund ehf., Ingvari Helgasyni ehf., Skjá einum ehf., Goða hf. og Samskipum hf.

Nýherji er samstæða upplýsingatæknifélaga, en meðal dótturfélaga þess eru Skyggnir ehf., TM Software ehf. og Sense ehf. Þá á félagið Applicon sem er með starfsemi á Íslandi, Danmörku og í Svíþjóð. Jafnframt á Nýherji danska upplýsingatæknifélagið Dansupport. Hátt í 600 manns starfa hjá samstæðunni.