Kristinn Kristófersson hefur verið ráðinn til FISK-Seafood. Auk almennra verkefna fyrir félagið mun Kristinn sinna sérstaklega starfsemi fyrirtækisins á Snæfellsnesi. Kristinn býr í Ólafsvík og starfaði áður hjá Deloitte.

Sérsvið Kristins eru uppgjör og endurskoðun sjávarútvegsfyrirtækja. Kristinn er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst en einnig er hann iðnrekstrarfræðingur frá Tækniskóla Íslands af útvegssviði.

Kristinn er kvæntur Auði Sigurjónsdóttur leikskólakennara og eiga þau saman þrjú börn.