Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku. Kristinn starfaði áður sem forstöðumaður virkjanareksturs hjá Orku Náttúrunnar en þar áður starfaði hann í 14 ár sem framkvæmdstjóri hjá Alcoa bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Kristinn er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá DTU í Danmörku auk B.Sc. gráðu í iðnaðartæknifræði frá Tækniskóla Íslands. Kristinn er kvæntur Hildi Briem og saman eiga þau þrjú börn.

Kristinn mun stýra allri framleiðslu HS Orku í jarðvarmavirkjununum í Svartsengi og á Reykjanesi auk vatnsaflsvirkjunarinnar á Brú í Tungufljóti. Þá er hafin stækkun á virkjuninni á Reykjanesi um 30 MW sem áætlað er að komi í rekstur í lok árs 2022.

Tómas Már Sigurðsson forstjóri HS Orku segir það vera mikið gleðiefni að fá Kristinn til liðs við félagið.

„Hann er gríðarlega reynslumikill stjórnandi með víðfeðma þekkingu á rekstri. Hann kemur með ferska sýn á verkefnin og ég er sannfærður um að hann mun reynast okkur öflugur liðsstyrkur,“ segir Tómas Már.

HS Orka hefur framleitt endurnýjanlega orku í 45 ár að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins, en jafnframt að hjá því starfi sérfræðingar með mikla reynslu á sínu sviði. Fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið Svartsengi og Reykjanesvirkjun auk einnar vatnsaflsvirkjunar í Brúará í Tungufljóti.

Fyrirtækið er að hefja vinnu við stækkun Reykjanesvirkjunar um 30 MW. Í tilkynningu segir jafnframt að nýsköpun og frjó hugsun hafi ætíð verið grunnurinn í starfsemi fyrirtækisins og það sé grunnurinn að Auðlindagarðinum, þar sem áhersla er lögð á að allir auðlindastraumarnir séu nýttir.