Kristinn Þór Geirsson
Kristinn Þór Geirsson
© Aðrir ljósmyndarar (VB MYND)

Kristinn Þór Geirsson, aðstoðarforstjóri Nýherja, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu.

Hann hóf störf í maí 2010, þegar félagið stóð í samningum um fjárhagslega endurskipulagningu. Hann mun hætta í lok þessa mánaðar, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.

Fleiri breytingar hafa verið gerðar innan dyra fyrirtækisins en Þorvaldur Jacobsen, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra tæknisviðs, tekur við starfi hjá Vörusviði Nýherja. .

Þá mun Gunnar Zoëga verða yfirmaður tæknisviðsins.