Kristinn Andersen, bæjarfulltrúi og verkfræðingur, býður sig fram í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði til að skipa áfram 2. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar, en prófkjörið fer fram laugardaginn 10. mars.

Kristinn leggur áherslu á að styrkja áfram rekstur og fjármál Hafnarfjarðarbæjar, bætta þjónustu fyrir íbúa og fyrirtæki og dregið verði enn frekar úr álögum og gjöldum með hagræðingum og umbótum í rekstri. Þá leggur hann áherslu á menningu og mannlíf í Hafnarfirði, áframhaldandi eflingu í fræðslumálum og mikilvægi góðrar menntunar í atvinnulífi 21. aldarinnar.

Kristinn er 59 ára prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands, en áður starfaði hann yfir 20 ár við rannsóknir og tækniþróun hjá Marel. Hann lauk verkfræðiprófi frá Háskóla Íslands og meistara- og doktorsprófi frá Vanderbilt háskóla í Bandaríkjunum, þar sem hann stofnaði og starfrækti verkfræðifyrirtæki ásamt öðrum með námi.

Hann var formaður Verkfræðingafélags Íslands 2011-2016 og formaður Íslandsdeildar alþjóðlega verkfræðingafélagsins IEEE 2003-2007. Hann hefur komið að margvíslegum ráðgjafarstörfum og stuðningi við tæknifyrirtæki og sprota í atvinnulífinu hérlendis sem erlendis.

Kristinn hefur tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins um áratuga skeið, var m.a. formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði 1999‑2004, sat í kjördæmisráði suðvesturkjördæmis og hefur gegnt formennsku menntamála- og allsherjarnefndar Sjálfstæðisflokksins.

Eiginkona Kristins er Þuríður Erla Halldórsdóttir, hárgreiðslumeistari, og eiga þau tvo syni, 29 og 23 ára.