Kristján Arason, sem verið hefur framkvæmdastjóri einkabankaþjónustu í Kaupþingi á Íslandi [ KAUP ], tekur um næstu mánaðamót við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs. Friðrik S. Halldórsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, lætur af störfum á sama tíma.

Þórarinn Stefánsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri eignastýringar, verður við þessar breytingar einnig framkvæmdastjóri einkabankaþjónustu.