Kristján Björn Snorrason, fyrrverandi útibússtjóri KB banka í Borgarnesi hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Skagafjarðar. Stefnt er að því að efla til muna Sparisjóðinn á næstu árum og hafa stofnfjáreigendur ákveðið að auka stofnfé sjóðsins. Meðal stofnfjáreigenda er Sparisjóður Mýrasýslu og er Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu nýkjörinn stjórnarformaður Sparisjóðs Skagafjarðar.

Þetta kemur fram í frétt Skessuhornsins.