Kristján Bragason, núverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, mun hætta störfum um áramótin en umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra rann út um síðustu helgi. 33 umsóknir bárust um stöðuna og standa vonir til að hægt verði að ráða í stöðuna um næstu mánaðamót.

Búist er við að nýr framkvæmdastjóri hefji störf á haustmánuðum.