Skilanefnd Glitnis banka hf. hefur ráðið Kristján Þ. Davíðsson sem framkvæmdastjóra gamla Glitnis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skilanefnd gamla Glitnis.

Kristján starfaði áður sem framkvæmdastjóri á sjávarútvegssviði Glitnis banka hf. Kristján mun, samkvæmt tilkynningunni, starfa náið með skilanefndinni, starfsmönnum gamla Glitnis og ráðgjöfum.