Kristján Geir Gunnarsson hefur verið ráðinn sem markaðsstjóri Nóa Síríus. Kristján hefur starfað sem markaðsráðgjafi á Íslensku auglýsingastofunni undanfarin ár. Þar áður starfaði hann m.a. hjá Ölgerðinni og Sláturfélagi Suðurlands. Kristján lauk MBA-prófi frá Copenhagen Business School árið 2007 . Að auki hefur hann B.Sc.-próf í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands.

Kristján er kvæntur Kristbjörgu Hjaltadóttur og eiga þau þrjú börn.