Kristján Kristjánsson, sem starfað hefur sem upplýsingafulltrúi Landsbankans undanfarin ár, hefur látið af störfum hjá bankanum.

Kristján var ráðinn til Landsbankans árið 2009 en hann starfaði áður sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu og síðar í Kastljósinu.

Þá var hann upplýsingafulltrúi FL Group á tímabili, en starfaði einnig fyrir hið opinbera, m.a. í forsætisráðuneytinu.