Kristján Harðarson mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá SPRON þann 1. nóvember næstkomandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPRON.

Kristján hefur starfað hjá SPRON frá árinu 2001.

Þá kemur fram að Kristján mun hefja störf í kjölfarið hjá Valitor og gegna starfi sviðsstjóra þróunar-og kynningarsviðs fyrirtækisins.