Kristján Jóhannsson
Kristján Jóhannsson
Kristján Jóhannsson hefur tekið sæti í stjórn rekstrarfélagsins Stefnis hf. í stað Hermanns Jónassonar, sem hefur sagt sig úr stjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar en hluthafafundur félagsins var haldinn í dag.

Þar kemur fram að meirihluti stjórnarmanna er óháður Arion banka, sem er móðurfélag Stefnis.

„Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur innlenda og alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta. Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf., gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010.“

Tilkynning Stefnis .