Sjö gefa kost á sér í stjórn HB Granda, en hún verður kjörin á aðalfundi félagsins sem fer fram þann 10. apríl næstkomandi.

Kristján Loftsson, eigandi og framkvæmdastjóri Hvals, gefur áfram kost á sér í stjórnina en auk hans bjóða sex einstaklingar fram starfskrafta sína. Ljóst er að ekki verður sjálfkjörið í stjórnina þar sem stjórnarsætin eru fimm talsins.

Auk Kristjáns gefa kost á sér þau Birgir Sveinn Bjarnason, Halldór Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir, Helga Hlín Hákonardóttir, Rannveig Rist og Þórður Sveinsson.