Fimm gefa kost á sér í stjórn HB Granda. Kristján Loftsson, formaður stjórnar HB Granda, gefur áfram kost á sér ásamt þeim Halldóri Teitssyni, Hönnu Ásgeirsdóttur og Rannveigu Rist. Nýr í framboði er Þórður Sverrisson, fyrrverandi forstjóri Nýherja, sem kemur inn í stað Jóhanns Hjartarsonar.

Aðalfundur HB Granda verður 21. mars næstkomandi, þ.e. á föstudag.