Kristján Vigfússon hefur tekið við stöðu forstöðumanns MBA námsins í Háskólanum í Reykjavík af Vlad Vaiman. Kristján hefur verið fastráðinn kennari við Viðskiptadeild skólans frá árinu 2008.

Áður en Kristján gekk til liðs við háskólann var hann með eigið ráðgjafafyrirtæki á sviði stefnumótunar og evrópumála og hafði þar á undan verið aðstoðarforstjóri Siglingastofnunar Íslands og sendifulltrúi í sendiráði Íslands í Brussel.