Stjórn N4 hefur ákveðið að ráða Kristján Kristjánsson sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá N4. Kristján hefur starfað hjá N4 frá árinu 2011 og hefur sinnt þar ýmsum störfum. Síðast var hann framvkæmdastjóri framleiðsludeildar hjá sjónvarpsstöðinni en hann hefur yfir 20 ára reynslu í fjölmiðlun og kvikmyndagerð bæði á Íslandi og í Noregi.

Í tilkynningu frá N4 segir Kristján vera þakklátur fyrir það traust sem honum er sýnt hjá fyrirtækinu. „Við á N4 höfum undanfarin ár náð árangri sem ég er mjög stoltur af. Við munum byggja áfram á þeirri hugmyndafræði og vinnu sem gerð hefur verið hingað til, á sama tíma og við horfum stórhuga til framtíðarinnar. Ég persónulega er mjög spenntur fyrir því að takast á við þetta verkefni sem ég er viss um að verður bæði krefjandi og gríðarlega skemmtilegt,“ segir Kristján Kristjánsson í tilkynningunni.