Kristján Þór Júlíusson og Geir Jón Þórisson munu heyja lokabaráttu um embætti 2. varaformanns Sjálfstæðisflokksins.

Þetta er í fyrsta sinn sem 2. varaformaður er kjörinn en kosið er eftir nýjum skipulagsreglum flokksins sem samþykktar voru á landsfundi flokksins í nóvember sl.

Fjórir einstaklingar höfðu gefið kost á sér í embættið; Jens Garðar Helgason, forseti bæjarstjórnar í Fjarðarbyggð, Geir Jón Þórisson, fyrrv. yfirlögregluþjónn, Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Enginn þeirra náði yfir 50% fylgi í fyrstu umferð og er því kosið milli tveggja efstu.

306 greiddu atkvæði í fyrri umferð. Aldís hlaut 42 atkvæði, Geir Jón hlaut 67 atkvæði, Jens Garðar hlaut 63 atkvæði en Kristján Þór 132 atkvæði. Því verður sem fyrr segir kosið á milli þeirra Geir Jóns og Kristjáns Þórs.