Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Njáll Trausti Friðbertsson munu koma til með að skipa tvö efstu sæti á lista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Þetta kemur fram á vef Vísis í dag.

Í frétt Vísis kemur fram að Kristján Þór sé öruggur í fyrsta sæti á listanum en aðeins munaði sjö atkvæðum á Njáli og Vlagerði Gunnarsdóttur í vali fyrir annað sætið.

Kjördæmisþing Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi fer fram í Skjólbrekku í Mývatnssveit um þessar mundir þar sem valið er á lista flokksins.