Kristján Skarphéðinsson hefur verið ráðinn ráðuneytisstjóri í nýju atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem tekur til starfa á laugardag. Ráðuneytið verður til við sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, iðnaðarráðuneytisins og hluta efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, verður yfir ráðuneytinu.

Staða ráðuneytisstjórans var ekki auglýst þrátt fyrir að lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins kveði á um slíkt. Lögin heimila jafnframt flutning á starfsmönnum á milli ráðuneyta í stað þess að auglýsa stöðurnar. Umboðsmaður Alþingis hefur jafnframt kveðið á um að auglýsa skulir stöður sem þessar.

Fram kemur í tilkynningu að Kristján hafi gegnt stöðu ráðuneytisstjóra í iðnaðarráðuneytinu síðastliðin tíu ár. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur starfað í stjórnarráðinu í 25 ár, m.a. sem skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og iðnaðarráðuneytinu. Staðgengill ráðuneytisstjóra verður Kjartan Gunnarsson skrifstofustjóri.

Við kynningu á nýju skipuriti ráðuneytisins í dag kom hins vegar fram að þrjár stöðu skrifstofustjóra verði auglýstar lausar til umsóknar um helgina.

Svona verður nýtt ráðuneyti:

Samkvæmt skipuriti verða fjórar fagskrifstofur í ráðuneytinu. Þær verða skrifstofa atvinnuþróunar, skrifstofa sjálfbærrar nýtingar, skrifstofa viðskiptahátta og skrifstofa afurða. Að auki eru þrjár skrifstofur sem vinna þvert á ráðuneytið en þær eru: Skrifstofa stefnumótunar og samhæfingar, skrifstofa fjárlaga og árangursstjórnar og skrifstofa innri þjónustu og rekstrar.

Hæfnisnefnd var ráðherra til ráðgjafar við skipan í embættin og fór ráðherra að tillögu hennar. Nefndin starfaði undir forystu doktors Ástu Bjarnadóttur mannauðsfræðings en með henni störfuðu þau Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og Margrét Guðmundsdóttir formaður Félags atvinnurekenda.

Skrifstofustjóri fjárlaga og árangursstjórnunar verður Helga Óskarsdóttir. Helga hefur verið skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu í fjögur ár. Helga er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í fjármálum.

Skrifstofustjóri atvinnuþróunar verður Sveinn Þorgrímsson. Sveinn hefur verið skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu í 13 ár. Sveinn er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur tvær meistaragráður frá Bandaríkjunum á sviði verkfræði.

Skrifstofustjóri sjálfbærrar nýtingar verður Ingvi Már Pálsson. Ingvi Már hefur verið skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu og hefur unnið í stjórnarráðinu í 12 ár. Ingvi Már er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu frá Hollandi.

Störf skrifstofustjóra viðskiptahátta, skrifstofustjóra afurða og skrifstofustjóra innri þjónustu og rekstrar verða auglýst laus til umsóknar.