Kristjana Ósk Jónsdóttir hefur verið ráðinn markaðs- og kynningarstjóri hjá Reitum fasteignafélagi.

Fram kemur í tilkynningu að Kristjana starfaði síðast sem verkefnastjóri hjá SJ1, fasteignafélagi í eigu Glitnis.. Áður starfaði hún í fyrirtækja- og fasteignaráðgjöf Askar Capital og hjá SPRON.

Kristjana er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með M.Sc. próf í fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík.

Fasteignafélagið Reitir er stærsta þjónustufyrirtækið á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði á Ísland og á það 130 fasteignir.