Kristrún Heimisdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins samkvæmt samkomulagi við stjórn samtakanna. Kristrún tók við sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins af Orra Haukssyni, sem nú er forstjóri Símans, í nóvember í fyrra.

Í tilkynningu er haft eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Samtaka iðnaðarins, að stjórn samtakanna þakki Kristrúnu fyrir góð störf hennar í þágu SI og óski henni góðs gengis í framtíðinni.