Kristrún Mjöll Frostadóttir hefur verið ráðin aðalhagfræðingur Kviku banka og mun hún hefja störf um miðjan janúar næstkomandi. Um er að ræða nýtt starf sem miðar að því að efla efnahagsgreiningu innan Kviku og styrkja þjónustu við viðskiptavini að því er segir á heimasíðu bankans. Aðalhagfræðingur mun jafnframt vera talsmaður bankans vegna mála sem snúa að fjármálamarkaði og efnahagsmálum.

Síðastliðið ár hefur Kristrún starfað sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands og tekið þátt í að móta málefnastarf ráðsins, en þangað kom hún frá bandaríska fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þar vann hún sem sérfræðingur í greiningardeild, fyrst í New York og síðan í London. Sérsvið Kristrúnar í London sneri að greiningu á evrópskum netverslunarfyrirtækjum. Í New York sinnti hún greiningarvinnu í tengslum við bandarísk eignastýringar- og orkufyrirtæki.

Þá hefur Kristrún starfað meðal annars sem hagfræðingur í greiningardeild Arion banka og sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Hún gegnir formennsku í verðlagsnefnd búvara hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, og hefur áður starfað sem hagfræðingur í starfshóp á vegum forsætisráðuneytisins.

Kristrún er með meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum, með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál, og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla. Þá er hún með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands.